M&M

sunnudagur, september 18, 2005

MONSTER in LAW

Leikarar:
Jennifer Lopez, Jene Fonda og Michael Vartan.

Horfði á þessa ræmu í gær í góðum gír.
Þetta er ósköp svona la la gamanmynd þar sem ósköp lítið óvæt gerist.
Fyndin á köflum. Jene Fonda er rosa flott í þessu hlutverki. Ekkert smá óþolandi tengdamóðir. Jennifer og Michael eru bæði rosa sæt og flott þarna, en það er ekki alveg nóg í þetta sinn.

Mæli kannski ekkert með því að þið hlaupið strax í dag á næstu leigu til að taka þessa mynd. En...
allt í lagi að taka hana ef ekkert annað er í boði. Eða jafnvel bara fínt að geyma það og horfa bara á hana á stöð 2 um næstu jól :)

Einkun
5

1 Comments:

At 11:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Horfði á þessa á leið heim frá Póllandi. Fannst hún alveg ágæt og eiginlega betri en ég reiknaði með. En sammála því að hún er e.t.v. aðeins of útreiknanleg. Fannst dúdinn kannski líka aðeins of mikill auli... sá alls ekki í gegn um mömmu gömlu. Jane Fonda átti samt góða spretti. Hefði verið þrusugóð með poppi.

 

Skrifa ummæli

<< Home