M&M

fimmtudagur, október 27, 2005


 Posted by Picasa

Robbie Williams - Intensive Care

Frábær diskur.
Búin að hlusta á hann svona 6 sinnum, og varður hann alltaf betri og betri við hverja hlustun.
Uppáhalds lögin mín eins og er eru:
lag nr.
1 Ghosts
2. Tripping
3. Make me pure
4. Spread your Wings
5. Advertising space
6. Your gay friend.

ji minn..
held ég hætti bara að telja upp hér. Ég virðist ekki geta gert upp á milli þeirra lengur þar sem ég er búin að skrifa fyrstu 6 lögin af plötunni niður.

En allavegana.. þrusudiskur. Mæli með honum.

Einkun: 9

föstudagur, október 14, 2005


 Posted by Picasa

40 year old virgin

Sá þessa mynd í gærkvöldi. Hún er bara nokkuð góð. Bjóst samt við því að hún væri fyndnari. En það er nú kannski ekki hægt að ætlast til þess að allar myndir séu jafn fyndnar og A Night at the Roxbury með Will Farrell og Chris Kattan:) bara besta mynd í heimi, eða svona næstum því.
Mér leiddist a.m.k ekki á meðan ég horfði.

Einkun:
7

þriðjudagur, október 04, 2005


Red Eye Posted by Picasa

Red Eye

Leikarar:
RACHEL McADAMS og
CILLIAN MURPHY.

Þetta er bara svona allt í lagi mynd. Mjög spennandi á köflum, en annars gerist svo sem ekki mikið í henni.
Leikararnir stóðu sig bara ljómandi vel. Sérstaklega dúdinn hann Cillian Murphy. Hann er ekta svona vondur gæi. Lék t.d vondan gaur í nýjustu Batman myndinni.

Hér getið þið kíkt
http://www.imdb.com/title/tt0421239/plotsummary
ef ykkur langar að sja um hvað þessi mynd er.

Einkun:
6

þriðjudagur, september 20, 2005


The Island Posted by Picasa

The Island

Leikarar:
Ewan McGregor, Scarlett Johansson og fl.

Verð bara að segja það, að ég hef bara ekki hugmynd um hvað mér fannst um þessa ræmu.

Fannst Scarlett frekar léleg.
Segi ekki meir.

Einkun
?

sunnudagur, september 18, 2005


 Posted by Picasa

American pie

Leikarar:
Jason Biggs, Seann Willian Scott, Tara Reid, Chris Klein, Mena Suvari og fl.

Horfði á hana þessa í nýja sjónvarpinu okkar (í 10 skipti eða svo :) á föstudagskvöldið.
Þessi mynd er BARA skemmtileg. Þetta er ein af þessum myndum sem maður getur horft á aftur og aftur og aftur og aftur og hún er alltaf jafn fyndin.
Persónurnar eru eitthvað svo ótrúlega flottar, fyndnar og mis óheppnar.


Myndir nr. 2 og 3 eru líka alveg frábærar.

Þetta safn er eitthvað sem ætti að vera til á hverju heimili :) :)

Einkun
9


Monster in Law Posted by Picasa

MONSTER in LAW

Leikarar:
Jennifer Lopez, Jene Fonda og Michael Vartan.

Horfði á þessa ræmu í gær í góðum gír.
Þetta er ósköp svona la la gamanmynd þar sem ósköp lítið óvæt gerist.
Fyndin á köflum. Jene Fonda er rosa flott í þessu hlutverki. Ekkert smá óþolandi tengdamóðir. Jennifer og Michael eru bæði rosa sæt og flott þarna, en það er ekki alveg nóg í þetta sinn.

Mæli kannski ekkert með því að þið hlaupið strax í dag á næstu leigu til að taka þessa mynd. En...
allt í lagi að taka hana ef ekkert annað er í boði. Eða jafnvel bara fínt að geyma það og horfa bara á hana á stöð 2 um næstu jól :)

Einkun
5


 Posted by Picasa

Dukes of Hazzard

Boring.
Ömurleg mynd.
Horfði á hana í 2 hollum. Mér leiddist frekar mikið allan tímann. Það voru örfá atriði sem maður gat aðeins flissað yfir, en það er alls ekki þess virði að horfa á hana.
Ekki einu sinni þó að Jessica Simpson leiki í henni.
Það gerist nákvæmlega ekkert í þessari mynd, eða jú annars, það var þarna einhver kappastur.

Einkun
2 (af 10)